Átt þú lítinn Emil í Kattholti eða litla Fíu Sól ?

18.04 2011 - Mánudagur

Auglýst er PMT foreldranámskeið sem meiningin er að halda á Vopnafirði í maí og júní. Fyrirsögnin er engin tilviljun því PMT, sem stendur fyrir „Parent Management Training" og er einkum höfðað til foreldra barna sem telja verður í líflegri kantinum - og það eru sögupersórnurnar, Emil og Fía Sól.

Ef upplýsinga er leitað viðvíkjandi PMT gefur að lesa:

PMT foreldranámskeið: eru fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika eða sem eru í áhættu vegna hegðunarerfiðleika. Um er að ræða átta vikna hópnámskeið þar sem 10-12 foreldrar fá ráðgjöf frá PMT ráðgjafa eða meðferðaraðila einu sinni í viku og vinna verkefni heima á milli tíma. Þjónustan við þennan hóp er umtalsvert minni en þegar um meðferð er að ræða en bandarískar rannsóknir sýna góðan árangur af slíkri fræðslu fyrir þennan hóp foreldra. Dæmi um þátttakendur á PMT foreldranámskeiðum eru foreldrar eldri barna í leikskóla og yngri barna í grunnskóla.

Dagbjört Kristinsdóttir, Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, hefur sent skólunum á Vopnafirði eftirfarandi bréf:

PMT foreldranámskeið: eru fyrir foreldra sem vilja stuðla að jákvæðri hegðun barna sinna og draga úr hegðunarvanda. Um er að ræða átta vikna hópnámskeið þar sem 10-12 foreldrar fá ráðgjöf frá PMT ráðgjafa einu sinni í viku og vinna verkefni heima á milli tíma.

Námskeiðið er hugsað fyrir foreldra barna á aldrinum 4-12 ára.

 

Kennt verður þriðjudagana:

 

3. maí

10. maí

17. maí

24. maí

31. maí

7. júní

14. júní

21. júní

frá klukkan 14:00-16:30

 

Nánari upplýsingar og skráning í síma 4700-705 og á netfangið dagbjort@egilsstadir.is

 

Eins og allir vita er samvinna foreldra mikilvæg og því er lögð áhersla á að báðir foreldrar mæti. Verð á námskeiðið er kr. 5.000.- fyrir fjölskyldu.

Lágmarksfjöldi þátttakenda á námskeiðinu er foreldrar 6 barna.

Nánar um PMT: Aðferðin er fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi barna og unglinga. PMT stuðlar að góðri aðlögun barna og er því afar mikilvæg aðferð ef börn sýna hegðunarfrávik. PMT er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT byggir á sterkum grunni rannsókna sem sýna að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og skilar mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vandann á fyrstu stigum.

Meginmarkmið námskeiðanna er að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir