Menningarráð úthlutar til 63 verkefna

19.04 2011 - Þriðjudagur

Menningarráð Austurlands úthlutaði laugardaginn 16.apríl sl., ríflega 63 styrkjum til menningarverkefna á Austurlandi, samtals að fjárhæð 26 milljónir króna.  Hæstu styrkir námu 1,2 milljónum króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum.  Alls bárust menningarráðinu 105 styrkumsóknir að þessu sinni. Frá Vopnafirði munu hafa komið 6 umsóknir, hlutu 3 þeirra náð fyrir augum stjórnar Menningarráðs. Eins og svo oft áður þegar menningarmálafulltrú sveitarfélagsins, f. h. menningarmála, sækir um eru verkefnin sett undir einn hatt, svo var einni nú og upphæðin samtals krónur 700 þúsund. Annað kom ekki í hlut Vopnfirðinga að þessu sinni. Raunar eru eyrnamerktar 100 þúsund krónur í Sögusýningu á verkum Björgvins Guðmundssonar en sýningin verður m. a. á Vopnafirði í vor - í umsjón Björgvinarfélagsins.

Í úthlutun Menningarráðs stendur um Vopnafjarðarverkefnin:

Þrjú verkefni sem orðin er hefð fyrir á Vopnafirði í umsjá Menningarnefndar Vopnafjarðar.

a. Skálda- og sagnakvöld, um skáldkonuna Erlu (Guðfinnu Þorsteinsdóttur) og son hennar Þorstein Valdimarsson.

b. Listasmiðjur fyrir börn á menningarhátíðinni Einu sinni á ágústkvöldi.

c. Skáldakvöld tileinkað Jóni Múla og Jónasi Árnasonum á hátíðinni Einu sinni á ágústkvöldi.

Svo sem stendur í bréfi Menningarráðs hefur hefð skapast viðvíkjandi ofangreind verkefni, þar af tvö tengd menningarhátíðinni Einu sinni á ágústkvöldi.

Í þessu samhengi er rétt að vekja athygli á að Vopnfirskt listafólk eins og annað Austfirskt býðst að sækja um til Menningarráðs og eru þeir sem eitthvað hafa fram að færa hvattir til að gera það. Nýverið skemmti Batteríið Vopnfirska heimamönnum með eftirminnilegum hætti en af eigin frumkvæði setti bandið saman dagskrá tileinkaða Múlabræðrum - og hyggist þau halda áfram á markaðri braut liggur beint við að sækja um stuðning til ráðsins. Ljóst er að úthlutun verður fyrr á ferðinni næst enda drátturinn að þessu sinni tilkomin vegna samningatregðu aðila í millum, Menningarráðs og ríkisvaldsins.

Á vef Menningarráðs, www.menning.is, er skrifað:

Ráðherrar mennta- og menningarmála og iðnaðar endurnýjuðu samstarfssamning ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál, föstudaginn 15. apríl 2011, og gildir hann til ársloka 2013. Þetta er í ellefta sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi ríkis og sveitarfélaga en fyrsta úthlutun fór fram árið 2002. Af umsóknum og úthlutunum í ár má ráða hve fjölbreytt og blómlegt lista- og menningarlíf er á Austurlandi, allt frá Vopnafirði til Djúpavogs. Sérstaklega er sýnileg nýsköpun og gróska í starfsemi sem viðkemur hönnun og kvikmyndun.

Sérstaka athygli vekur einnig hversu margir ungir listamenn á Austurlandi sækja um stuðning til verkefna sem þeir ætla að hrinda í framkvæmd. Mikilvægt er að fyrirtæki,sveitarfélög og stofnanir sjái tækifæri í að efla samstarf við listamenn á Austurlandi nú á tímum atvinnuleysis og þrenginga á vinnumarkaði. Þá eiga sveitarfélög að sjá sér hag í því að ráða til sín listmenntað fólk í stofnanir sveitarfélaga og breikka þannig menntun og þekkingu innan stofnana sveitarfélaga. Menning og listir auðga samfélagið. Auk þess hafa listamenn lengi verið helstu hugmyndasmiðir í nýsköpun hverskonar og komið að gerð nýrrar vöru og vöruflokka. Menningarráð Austurlands telur mikilvægt fyrir uppbyggingu í fjórðungnum að fá fleiri listamenn til þess að flytja í landshlutann og auka samstarf við listamenn á sem flestum sviðum, ekki bara til að auðga menningarlífið heldur ekki síður til að efla nýsköpun.

Hér má finna lista yfir úthlutaða styrki Menningarráðs Austurland fyrir 2011.

Úthlutun Menn.ráðs 2011.pdf





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir