
Norður- og Austurland hafa notið mildra vinda - og þó sumum finnist þeir fara á stundum full hratt yfir vilja víst fæstir skipta á þeim og norðangjólunni, nóg er af henni. Á sama tíma og við höfum ítrekað frétt af misjöfnu veðurfari á Suður- og Vesturlandi hefur veðrið eiginlega leikið við okkur og ber að þakka það. Nú er bara að vona að áfram blási hlýir vindar en því hefur því miður ekki verið að heilsa sl. sumur, sem hafa verið rök og svöl. Alla vega, er á meðan er og meðan við fáum um ekkert um það ráðið úr hvaða átt vindar blása höldum skulum við taka þeim fagnandi meðan þeir koma úr réttri átt - fyrir okkur!
Hér að neðan eru nokkrar myndir sem heimildarmaður tók á sl. dögum.