Jósep myndar morgunroðann

29.04 2011 - Föstudagur

Heimildarmaður hefur síðustu daga verið æði upptekinn af veðrinu; fer saman sú staðreynd að sumarið er komið samkvæmt almanakinu og veðrið hefur leikið við okkur um alllangt skeið. Þetta er á sama tíma og íbúar suð-vestur-hornsins hafa búið við lakara veður og ber nýrra við því engu munar á gróðri þar og hér en öllu jafna er munurinn mikill að vori og snemmsumars.

Jósep okkar Jósepsson, Jobbi, er gjarnan með myndavélina við höndina þegar hann er á röltinu og á röltinu er hann oftar en velflestir Vopnfirðingar. Þó það sé í sjálfu sér ekki málið njótum við þess á stundum því Jobbi kann alveg að taka myndir og hér á síðunni fylgja nokkrar er strákurinn tók þann 22. apríl sl.

Hrafn Gunnlaugsson gerði myndina "Blóðrautt sólarlag" þar sem meðal annarra Helgi Skúlason fór á kostum en í tilfelli Jobba er það morgunroðinn, morgunsólin, sem fangar augað en fyrsta myndin var tekin kl. 05:45 og hinar komu svo í kjölfarið næstu mínútur. Njótið vel.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir