
Heiðursmaðurinn, Ingibjörn Sigurjónsson, Dúddi eins og við öll þekkjum hann, hyggst frá og með mánaðarmótunum apríl-maí n. k. hætta hjá Vopnafjarðarhreppi eftir 30 ára starf. Ekki einungis hættir Dúddi hjá sveitarfélaginu heldur hefur hann hér með lokið þætti sínum á atvinnumarkaði og snýr sér að því sem stendur honum nær, áhugamálunum.
Á 30 ára ferli hefur Dúddi komið víða við í starfi sínu hjá sveitarfélaginu, hóf störf sem húsvörður Miklagarðs 1981 og sinnti því starfi um árabil uns skólaakstur tók við. Aftur sneri Dúddi til starfa í Miklagarði á 9unda áratug liðinnar aldar og gengdi því starfi uns hann náði 65 ára aldri - þá færði kappinn sig yfir í áhaldahúsið og þar er hann fram á lokadag. Hefur hann haft mikla ánægju af því starfi enda hitti hann þar fyrir eintóma toppmenn.
Er Dúdda þökkuð samfylgdin öll þessi ár, framlag hans til samfélagsins og það von okkar að hann fái að njóta komandi ára hress og kátur innan um sitt fólk, berjandi hvítu kúlurnar á golfvellinum og/eða með línu í einhverri ánni sem gefur möguleg fisk á öngulinn.