Síðastliðinn föstudag birtum við myndir Jóseps, Jobba, af morgunroðanum í austri, vöktu þær eðlilega athygli. Jósep fer víða og er ávallt með myndavélina sem förunaut. Þann 22. apríl sl. var strákur á rölti í nágrenni Bustarfells en það er sama hversu mjög er myndað þar má alltaf bæta um betur. Myndirnar eru sumar hverjar líkar þeim sem áður hafa birst af bænum meðan aðrar eru í óvenjulegri kantinum - birtast þær allar hér enda fátt skemmtilegra en að virða fyrir sér myndir þó þær allar kunni að fela í sér sama mótífið.
Bustarfell mun vera sá staður í Vopnafirði sem mest er myndaður, alltént birtast myndir af bænum æði víða en eins og fólk veit eru þeir fáir bæirnir sem standa þessum framar hvað söguna áhrærir auk þess sem minjasafnið er eitt hið merkasta á sínu sviði.