Prumpuhóllinn á Vopnafirði

03.05 2011 - Þriðjudagur

Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið PRUMPUHÓLLINN eftir Þorvald Þorsteinsson í Vopnafjarðarskóla  fimmtudaginn 05. maí  kl. 15:00.

 

Leikritið Prumpuhóllinn var frumsýndur í Möguleikhúsinu árið 2002 og sýndur rúmlega 100 sinnum á næstu tveimur leikárum. Nú hefur Möguleikhúsið tekið verkið til sýninga að nýju og endurfrumsýnir það með nýjum leikurum á 20 ára afmæli leikhússins. Og til Vopnafjarðar er leikhúsið mætt með hólinn, en sýningin er fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja - 10 ára og tekur um 45 mínútur í flutningi. Leikskólakrakkar og allt uppí 7unda bekk hafa fengið boð um leiksýninguna en á hana kostar kr. 1.500,-

Sagan er einhvern veginn svona:

Hulda er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum vill ekki betur til en hún villist og ratar ekki heim. Henni líst ekkert á þetta umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt!

Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé í raun pabbi sinn. Hann hafi lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan... maður lifandi!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir