Á fundi hreppsnefndar 28. apríl sl. var tekinn fyrir úrskurður ríkissaksóknara viðvíkjandi kæru Vopnafjarðarhrepps á félagið Gift ehf. en áður hafði embætti ríkislögreglustjóra komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til rannsóknar á því hvað varð um umtalsverða fjármuni eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er runnu inn í Gift. Tók það ferli samtals eitt ár. Þeirri niðurstöðu undu hvorki Vopnafjarðarhreppur né Djúpavogs og vísuðu málinu til ríkissaksóknara. Niðurstaðan liggur nú fyrir og er hlutaðeigandi eðlilega vonbrigði en í bókun hreppsnefndar stendur:
7. mál. Bréf ríkissaksóknara dags. 8. apríl sl., varðandi málefni Giftar
Lagt fram bréf ríkissaksóknara frá 8. apríl sl., sem er svar við bréfi Vopnafjarðarhrepps frá 4. mars sl., þar sem Vopnafjarðarhreppur ákvað að nýta sér ákvæði 5. og 6. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 sbr. og lög nr. 36/1999 um að bera ákvörðun Ríkislögreglustjóra undir Ríkissaksóknara.
Ríkislögreglustjóri hafði tekið ákvörðun um það skv. bréfi hans dags. 9. febrúar sl., með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að vísa frá kæru Vopnafjarðarhrepps, sem sett hafði verið fram með bréfi Vopnafjarðarhrepps frá 17. febrúar 2010.
Með bréfi sínu frá 8. apríl sl., staðfestir ríkissaksóknari ákvörðun ríkislögreglustjóra frá 9. feb. sl., um að vísa frá kæru vegna málsins.
Talsverðar umræður urðu um málsmeðferð þessa og þá umfjöllun sem kæra Vopnafjarðarhrepps hafði fengið hjá embættum ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.
Vopnafjarðarhreppur lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu málsins en telur ekki að svo stöddu ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.