Ársreikningur sveitarfélagsins samþykktur samhljóða

06.05 2011 - Föstudagur

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps var tekinn til seinni umræðu á hreppsnefndarfundi í gær, fimmtudaginn 05. maí. Er skemmst frá því að segja að hann var samþykktur samhljóða, sem sýnir að samstaða er innan sveitarstjórnar um reikninginn en allir hlutaðeigandi, sveitarstjóri, sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, endurskoðendur og hreppsnefndarfólk hefur lagt í mikla vinnu hér að lútandi.

Í ársreikningunum kemur fram að hagnaður samstæðunnar eftir afskriftir og fjármagnsliði er 41,8 m.kr. og þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskirftum, verðbótum og gengismun þá er veltufé frá rekstri 97,1 m. kr.  Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum þá er handbært fé frá rekstri árið 2010 130,0 m.kr.

Hér fyrir neðan er bókun fundarins en að öðru leyti er vísað til fundargerða hreppsnefndar, sem allar er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

2. mál. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta fyrir árið 2010

 

Fyrri umræða ársreikninga Vopnafjarðarhrepps fór fram 28. apríl sl., og voru þá til umræðu ársreikningar A-og B-hluta fyrir árið 2010, sundurliðanir ársreiknings, endurskoðunarskýrsla KPMG og greinagerð sveitarstóra með ársreikningum 2010. Á þann fund var einnig mættur löggiltur endurskoðendi KPMG, Magnús Jónsson,  gerði hann grein fyrir endurskoðunarvinnu sinni, endurskoðunarskýrslu og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Öll þessi gögn eru til umfjöllunar hér í dag við síðari umræðu ársreikninga ársins 2010.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og skýrði helstu stærðir í ársreikningum. Að öðru leyti vísaði hann til ársreikningsins, greinargerðar sinnar með reikningunum, skýringa og gagna KPMG.

 

Í ársreikningunum kemur fram að hagnaður samstæðunnar eftir afskriftir og fjármagnsliði er 41,8 m.kr. og þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskirftum,  verðbótum og gengismun þá er veltufé frá rekstri 97,1 m. kr.  Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum þá er handbært fé frá rekstri árið 2010 130,0 m.kr.

 

Fjárhæð þessi dugar liðlega til þess að greiða niður fjárfestingar og allar afborganir lána án þess að nokkur ný lán séu tekin á árinu.

 

Eftir að lán hafa verið greidd niður um 98,7 m.kr. og fjárfestingar nettó um 28,4 m.kr. þá hækkar handbært fé um 2,9 m.kr. og er 19,5 m. kr. í árslok.

Eftir yfirferð sína lagði sveitarstjóri síðan til að ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B- hluta fyrir árið 2010 yrðu samþykktir.

Nokkrar  umræður urðu um ársreikningana og önnur fyrirliggjandi gögn, þar sem fundarmenn lýstu skoðunum sínum. Voru nefndarmenn almennt sáttir við rekstur sveitarfélagsins, tekist hafi vel að halda utan um kostnaðarliðina og að væntingar um tekjur hafi fyllilega staðist.

 

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2010 A- og B- hluta borinn upp til samþykktar.

 

Samþykktur samhljóða með 7 atkvæðum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir