Undanfarin misseri hefur nokkuð farið fyrir umræðu um framhaldsskóladeild á Vopnafirði þar sem ungmennum byðist 2ja ára nám í heimabyggð í námsveri líkt og þegar hefur verið gert á Þórshöfn. Nágrannar vorir lofa árangurinn og rétt að litið sé til þeirra. Einn þeirra sem sýnt hefur málefninu mikinn áhuga, verið duglegur að tjá sig um það, er sr. Stefán Már Gunnlaugsson, formaður foreldrafélags Vopnafjarðarskóla. Hefur Stefán Már sett hugleiðingar sínar á blað og fara þær hér á eftir, til umfjöllunar er framhaldskóladeild á Vopnafirði og sett fram í fyrirsögn með ?-merki fyrir aftan enda liggur ákvörðun hér að lútandi ekki fyrir.
Hugleiðingar sr. Stefáns Más:
Síðustu áratugi hefur orðið mikil þróun framhaldsskólamenntun á Íslandi. Nú fara nær öll börn í framhaldsskóla og mikill meirihluti lýkur iðn- eða bóknámi. Samfara aukinni aðsókn í framhaldsskólana hefur verið gert mikið átak í uppbyggingu nýrra skóla um allt land. Þá hafa tilraunir með framhaldsskóladeildir í fámennari byggðum gengið vel, t.d. á Patreksfirði, Hólmavík og Þórshöfn, þar sem boðið er upp á tveggja ára framhaldsskólanám.
Þar sem boðið er upp á framhaldsskóladeildir hefur brottfall úr námi minnkað, fjölbreytni í félags- og menningarstarfi aukist sem hefur jákvæð áhrif á búsetuþróun. Þá er þessi tími unglingsáranna mikilvægur þroskatími og dýrmætt að njóta handleiðslu og stuðnings foreldra sinna í vegferð sinni til aukins sjálfstæðis og fullorðinsáranna. Reynslan af framhaldsskóladeildinni á Þórshöfn hefur verið mjög góð. Námið fer fram í fjarnámi og einu sinni í mánuði er farið í Framhaldsskólann á Laugum þar sem dvalið er viku í senn. Með þeim hætti myndast tengsl við skólann, kennara og aðra nemendur. Verkefnastjóri heldur utan um hópinn og fylgir honum eftir í náminu og styður við bakið á þeim. Ungmennin hafa haft jákvæð áhrif á íþróttastarfið, félagslífið og atvinnulífið á staðnum og árangur þeirra í náminu er góður.
Á Vopnafirði er mjög góð þjónusta við börn og unglinga á leik- og grunnskólaaldri, það eru sönn lífsgæði að vel er hlúð að börnunum. Þar starfar menntað fagfólk sem ber umhyggju fyrir velferð og líðan barnanna. Þá er í boði fjölbreytt félagsstarf fyrir börn í grunnskólanum og hér hefur margt verið gert til fyrirmyndar í gegnum tíðina eins og einsetning grunnskólans o. fl. Nú er það svo að jafnvel minni sveitarfélög en Vopnafjörður og sum betur í sveit sett varðandi samgöngur geta boðið upp á framhaldsnám í heimabyggð. Frá Vopnafirði þarf að fara um fjallvegi og öræfi til að fara í framhaldsskóla og líklega þarf enginn hópur að sækja sér menntun um jafn langan veg og þau börn sem koma frá Vopnafirði.
Nú í haust á að gera átak í að fjölga nemendum í framhaldsskólum og gera öllum yngri en 25 ára kleift að stunda nám. Stofnun framhaldsskóladeildar á Vopnafirði er líklega hagkvæmasti kosturinn til að fjölga nemendum. Það myndi einnig styrkja stöðu framhaldsskólans á Laugum, en ekki síst styrka stöðu foreldra og samfélagsins hér á Vopnafirði.
Nú þarf hins vegar samstillt átak okkar allra sveitastjórnar og íbúanna að gefa börnunum okkar val um að stunda nám í heimabyggð, þannig að þau geti stundað nám í öryggi fjölskyldu sinna og vina. Hér er einnig dýrmætt tækifæri til þess að gera gott samfélag enn betra og tryggja byggðina hér á Vopnafirði enn betur í sessi.
Vopnafirði, 06. maí 2011,
Stefán Már Gunnlaugsson