Knattspyrna meistaraflokks á Vopnafirði í sumar

10.05 2011 - Þriðjudagur

Miklar breytingar hafa orðið á Íslandi undanfarna áratugi, litlu sjávarbyggðirnar hafa átt undir högg að sækja, íbúum hefur fækkað og aldurssamsetningin versnað að því leyti að samfélögin eru að eldast. Framangreint endurspeglast í nemendafjölda grunnskólans, sem hefur fækkað á sl. árum. Við sem búum á litlum stað vitum fullvel að þessi þróun er í engu samræmi við hversu gott er að búa á stað sem þessum en meðan maður ekki reynir veit hinn sami ekkert. Hvað um það þá er það staðreynd að fólki hefur fækkað og kristallast síðan í því að þegar Ungmennafélagið Einherji hyggst koma saman knattspyrnuliði, sem á gullaldarárum samfélagsins var byggt alfarið á heimamönnum, þarf að leita hófanna út fyrir samfélagið góða. Og það langt.

Það var í raun erfið staða sem forráðamenn félags eins og Einherja stóðu frammi fyrir því ekki er sjálfgefið að haldið sé úti knattspyrnuliði þegar þess er gætt að hópur heimanna rétt nær 10 leikmönnum. Reynsla sl. ára hefur því miður verið sú að ungir menn sem ekki hafa átt víst sæti í liðinu hafa kvatt félagsskapinn á miðju sumri, með öðrum orðum gefist upp. Eftir hefur staðið lítill kjarni duglegra stráka og einmitt fyrir þær sakir var ákveðið að reyna að koma á knattspyrnu meistaraflokks Einherja sumarið 2011. Fólki hættir til að horfa á málefni sem þetta sem einangrað fyrirbæri, áhugamál fáeinna sérvitringa sem virðast vita lítið hvað þeir eiga við (dýrmætan) frítíma sinn að gjöra. Ekkert er fjær sanni.

Í fyrsta lagi gætu hlutaðeigandi stjórnarmenn Einherja tekið þá ákvörðun að slá þátttökuna af og notið sumarsins í rólegheitum án nokkurra skuldbindinga við samfélag sitt. Í öðru lagi er það býsna stór hópur sem vill að Vopnfirðingar geri sig gildandi meðal annarra í þessu samhengi. Í þriðja lagi, og það skiptir ekki svo litlu máli, þá eru málefni knattspyrnu meistaraflokks – og annarra flokka auk heldur – ferðamál því keppnisflokkum fylgir fólk, á stundum stórir hópar, og það fólk verslar á Vopnafirði. Í tilfellum eru hlutaðeigandi að koma á Vopnafjörð fyrsta sinni, líki fólki vel mun það greina öðrum frá því og er líklegt til að koma aftur undir öðrum kringumstæðum.

Málið er heimildarmanni skylt, hann hefur um árabil lagt ungmennafélaginu til starfskrafta sína ásamt öllu því öðru sem í starfi hans felst svo sumar eftir sumar hefur það verið yfirfullt af vinnu og minna farið fyrir þörfu sumarfríinu. Og hann er ekki einn, aðrir í stjórn Einherja eru reiðubúnir til að leggja á sig ómælda vinnu til að geta skapað grundvöll fyrir þá ósviknu ánægju og gleði sem boltasparkinu fylgir – þetta sumarið og sjá svo til með framhaldið. Starf stjórnar er ekki hafið yfir gagnrýni fremur en aðrar mannlegar athafnir en það er þó þetta fólk sem er reiðubúið að vinna samfélagi sínu gott verk og meðan þessi hópur gerir það þurfa aðrir ekki að sinna því.

Eins og áður greindi er langt í frá sjálfgefið að hér verði leikin knattspyrna meistaraflokks en með ákvörðun sinni að halda áfram á markaðri braut verður svo á komandi sumri. Kallar stjórn Einherja eðlilega eftir að áhugafólk, hinir hafa hvort eð er aldrei komið að málum, leggi málefninu lið með ráð og dáð. Ráðinn hefur verið þjálfari frá Skotlandi, David Hannah, og með honum koma 3 landsmenn hans auk Þjóðverja sem verja mun mark Einherja í sumar. Nöfn leikmannanna eru: Galy Muckersie, Reece Ritchie, Paul Thomson og Simon Lukas. Hannah er gamalreyndur refur og lék m. a. 2 ár með stórliðinu Glasgow Celtic, en hinir ungir og flestir í mennta- eða háskólanámi í Skotlandi. Þess má að lokum geta að "gamli" Vopnfirðingurinn, Sævar Pétursson, hugsar til síns fyrrum samfélags og hefur skipt yfir í Einherja - og er hér með okkar maður þegar við þurfum á reynslubolta að halda.

Er það von okkar er að Einherja standa að framundan sé spennandi knattspyrnusumar með virkri þátttöku heimamanna, sem fjölmenna á völlinn til að styðja við bakið á okkar mönnum. Allt eru þetta okkar menn, sama hvaðan þeir kunna að koma – Áfram Einherji!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir