Jósef, Jobbi, hefur verið duglegur að rölta um sveitarfélagið okkar með myndavélina að vopni. Hefur heimasíða sveitarfélagsins notið góðs og þar með lesendur hennar sannarlega um leið. Er það vel því myndmálið er textanum þúsund sinnum sterkara svo sem kunnugt er og með með því að birta hér 15 ljósmyndir hafa sparast 15 þúsund orð!
Í sl. mánuði rölti Jobbi með Lónunum, Skóga- og Beinalóni, og tók meðfylgjandi myndir en á fræðaþingi landbúnaðarins árið 2007 lýstu þeir ingi Rúnar Jónsson og Þórólfur Antonsson aðstæðum með eftirfarandi hætti hafandi sjóbleikjueldi til hliðsjónar.
Vesturdalsá fellur í Nýpslón, sem skiptist í Skógalón (innri hluti) og Beinalón (ytri hluti). Nýpslón er ísalt, með litla seltu við ós Vesturdalsár en aukna seltu eftir því sem utarn dregur. Nýpslón virðist hafa mikla þýðingu varðandi lífsferil og far sjóbleikjunnar í Vesturdalsá, bæði vegna þess að þar getur bleikjan fundið þá seltu sem hentar henni hverju sinni, en einnig þar sem það er ríkara af fæðu en áin. Aðstæður í lóninu ættu því að nýtast bleikju af mismunandi stærð, en leiddar hafa verið að því líkur í fyrri rannsóknum að aðstæður í lóninu hafi mikla þýðingu fyrir bleikjuna sem er að ganga í fyrsta skipti til sjávar. (Ingi Rúnar Jónsson og Þórólfur Antonsson 2005a).
Hvort farið verður í eldið eður ei mun tíminn einn skera úr um en aðstæður virðast vera til staðar að stunda slíka iðju.