Ferðasýningin Íslandsperlur 2011

12.05 2011 - Fimmtudagur

Helgina 21.-22. maí verður ferðasýningin Íslandsperlur haldin í Perlunni . Sýningin er öllum opin og stendur báða dagana frá kl. 10-18. Þar gefst gestum tækifæri á að kynna sér fjölbreytta ferðamöguleika á Íslandi, skoða, spjalla og spyrja, bragða á íslenskum krásum og njóta fjölbreyttra uppákoma. Að Íslandsperlum standa markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta bænda, Opinn landbúnaður og Beint frá býli.

Sýningargestum verður boðið að ganga hringinn í kringum landið og fá smjörþefinn af því besta sem ferðalöngum stendur til boða í sumar. Auk þess býðst öllum að taka þátt í skemmtilegri ferðagetraun þar sem svörin við spurningunum leynast á sýningunni. Getraunin á eftir að reynast einhverjum gestum happadrjúg því í boði eru veglegir ferðavinningar.

Á Íslandsperlum í ár beinum við athyglinni að vatni í öllum sínum myndum; ánum, lækjunum, jöklunum, skíðasvæðunum, sundlaugunum og sjónum umhverfis landið. Fossar falla niður veggi og brúað verður yfir læki sem liðast á milli landshluta þar sem ferðaþjónustuaðilar kynna spennandi möguleika og nýjungar fyrir komandi ferðasumar.

Hvort sem fólk hefur áhuga á fugla-, sela-, eða hvalaskoðun, gönguferðum um fjall eða fjöru, skella sér á söfn eða í sundlaugar, njóta menningar og lista, stunda stangveiði eða sjóböð,  slappa af í heilsulindum eða dvelja í blómlegum bæjum landsins þá finna allir örugglega eitthvað sem heillar á Íslandsperlum.

Að venju gera Austfirðingar sig gildandi á sýningunni, ekki er langt síðan að Vopnafjarðardrekinn var eitt höfuðeinkenna Austurlandshluta sýningarinnar og á sl. ári vann landshlutinn matreiðslukeppnina með efni heima úr héraði. Það er ekki beinlínis um skamman veg að fara fyrir íbúa landshlutans en þeir sem á annað borð eiga ferð í höfuðstaðinn eða eru brottfluttir Austfirðingar er ferð í Perluna skylda. Allir eru þangað velkomnir.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir