Fjölskyldudagur á Vopnafirði

13.05 2011 - Föstudagur

Næst komandi sunnudag, 15. maí, gera Vopnfirðingar sér glaðan dag, glaðan fjölskyldudag, en félagasamtök í sveitarfélaginu taka höndum saman og standa að dagskrá ætlaðri fjölskyldunni allri. Vitað er að maður er manns gaman og er óskandi að íbúar fjölmenni og njóti þess sem í boði er en mestu skiptir að hver og einn sé reiðubúinn til að leggja sitt að mörkum til að gera daginn sem ánægjulegastan. Eitt og annað verður í boði eins og sjá mátti í flygildinu er fór í hús sveitarfélagsins í vikunni.

Dagskráin er svofelld:

Kl. 12:30: Andlitsmálun, blöðrur og samvera í kirkjunni. Börnin fá sumargjöf frá kirkjunum í Hofsprestakalli

Kl. 13:30: Skrúðganga að skólavelli

Kl. 14:00-15:30: Fjölbreytt dagskrá á skólavellinum. Leikir, kassaklifur, teymt undir börnunum o. fl. Björgunarsveitin og slökkviliðið sýna búnað og tæki

Kl. 15:00: Leikir 5. flokks Einherja stúlkna og drengja við lið Langnesinga

 

Kl. 15:00: Kaffisala Slysavarnarfélagsins í Miklagarði – vöfflur að hætti Vopna og skúffukaka:

-         Kökubasar – lukkuleikur barna – úrslit teiknimyndasamkeppni – söngur leikskólabarna

 

17:00: Bólholtsbikarkeppnin í körfubolta: Einherji – Austri í íþróttahúsinu

 

Hofsprestakall, Slysavarnardeildin Sjöfn, Björgunarsveitin Vopni, Ungm.fél. Einherji, Hestamannafélagið Glófaxi standa saman að fjölskyldudegi á Vopnafirði





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir