Ánægja með fjölskyldudag

16.05 2011 - Mánudagur

Í gær, sunnudaginn 15. maí, stóðu nokkur félagasamtök á Vopnafirði fyrir fjölskyldudegi og er óhætt að staðhæfa að vel hafi til tekist - þrátt fyrir að veðurguðir hafi á ögurstundu svikið lit og hellt yfir mannskapinn steypiregni þegar hæst stóð á skólalóðinni. Fór svo að útidagskrá lauk um leið og flautað var til leiksloka í seinni leik Einherja og Langaness, þar sem gestirnir fóru með sigur af hólmi í báðum tilfellum en það gengur bara betur næst.

Dagskrá hófst með andlitsmálun og samveru í kirkjunni, var þangað vel mætt og hélt hópurinn fylktu liði að skólalóðinni þar sem bílar björgunarsveitar og slökkviliðs biðu þeirra auk þess sem kranabíll var þess albúinn að taka við krökkum í kassaklifur. Leikir voru undirbúnir á sparkvelli áður en við tóku knattleikir okkar krakka og Þórshafnar. Auk þessa sem Glófaxi bauð uppá hestareið þeim krökkum sem vildu prófa - og þau voru mörg sem vildu.

Þar sem regnið var bæði verulega blautt (!) og fjandi kalt lauk dagskrá með boltaleikjunum tveimur en í Miklagarði bauð þeirra og annarra veisla að hætti slysavarnarkvenna og björgunarsveitar, var vel mætt og nóg um að vera: Þannig var boðið uppá kaffi, djús, vöfflur og skúffuköku, kökubasar og hann glæsilegan, pakkauppboð, söng leikskólabarna og sýningu barna er þátt tóku í teiknisamkeppni og verðlaunaafhendingu samfara henni. Einkar ánægjulegum degi lauk formlega á fimmta tímanum og ljóst að þetta munu hlutaðeigandi félög endurtaka.

Meðfylgjandi eru myndir heimildarmanns frá fjölskyldudeginum á Vopnafirði í gær.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir