Fyrsta leik Einherja frestað

20.05 2011 - Föstudagur

Í kvöld skyldi fyrsti leikur Einherja á Íslandsmótinu í knattspyrnu gegn Huginn leikinn á Vopnafjarðarvelli en af eðlilegum ástæðum hefur þeim leik verið frestað - og settur á þriðjudagskvöldið 24. maí n. k. kl. 20:00.

Hann hefur verið óvenju gjafmildur á vökvann, himnafaðirinn, en sl. daga hefur rignt meira en góðu hófi gegnir, var úrkoman hvergi meiri á landinu en á Skjaldþingsstöðum í fyrradag. Þessari ofankomu samfara eru kaldir vindar norðursins - og fyrir rest tók ofankoman á sig nýja mynd svo sem meðfylgjandi myndir frá kl. 07 í morgun bera með sér.

Vopnfirðingar sem aðrir er þurftu um hálendið að fara í gær lentu hver á fætur öðrum í vandræðum, einkum og sér í lagi í Vopnafjaðarheiðinni framanverðri og mun til og með bifreið björgunarsveitar hafa átt í mesta basli í þeim aðstæðum sem ríktu. Í sjálfu sér er ekkert sem kemur á óvart við hret sem þetta en einhvern veginn finnst manni sem það sé öllu óþarft, af hverju þarf veðrið að taka slíkum umskiptum - og þá eftir miðjan maí hafandi haft besta aprílmánuð í manna minnum án norðanáhlaups og ískaldrar rigningardembu.

Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands má vænta að norðanáhlaupið haldi landinu í greip sinni fram í næstu viku, sjálfsagt verður ekki komin veðurblíða á þriðjudag þegar leikið verður á Vopnafjarðarvelli en uppúr því er reiknað með viðsnúningi vinda - og þá er bara að vona að það verði til langframa ...

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá í morgun sem og fáeinar af fyrstu æfingu Davids Hannah, nýráðins þjálfara Einherja, sl. sunnudag er enn var þurrt en sá dagur markar þó upphaf vetrarhretsins því hann átti eftir að minna á sig með hressilegri rigningardembu!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir