Batteríið komið til að vera - vonandi

23.05 2011 - Mánudagur

Heimasveitin Batteríið bauð að nýju uppá tónleika í Kaupvangi sl. föstudagskvöld vegna fjölda áskorana. Kom það sér t. a. m. vel fyrir þann sem þetta ritar þar eð hann átti ekki heimangengt þegar fyrstu tónleikar sveitarinnar fóru fram í síðasta mánuði. Var sjálfgefið að farið yrði á þessa ásamt betri helmingnum og þó vitað væri fyrirfram að ánægjulegt yrði þar eð leikin skyldu lög Múlans við texta Jónasar tóku tónleikarnir vonunum fram, einfaldlega svo. Ástæðan? Jú, hljómsveitar meðlimir skemmtu sér svo vel sjálfir að ósvikin gleðin smitaðist til gestanna er fjölmenntu í Kaupvang - síðast var sannarlega troðfullt.

Lagavalið kom heimildarmanni að sumu leyti á óvart því meðlimir höfðu valið að leika nokkur lög minna þekkt en þau allra þekktustu af lögum þeirra Múlabræðra hljómuðu að sjálfsögðu einnig. Sama hvert lagið var gerðu liðsmenn sitt besta og útkoman bráðskemmtilegir tónleikar þar sem léttleikinn réð ríkjum. Fór mest fyrir þeim Jóhanni Má, sem sagði sögu af lögunum, og Gunnari Smára, en honum hentar vel að koma með létt innslög og var samspilið vellukkað í alla staði. Aðrir meðlimir komu að nettum innskotum öðru hverju, áheyrendum til ánægju og þegar upp var staðið hafði Batteríið skilað framúrskarandi skemmtun og þykist sá sem þetta ritar vita að hann er einn margra sem bindur vonir við áframhaldandi samstarf meðlima. Ber að þakka fyrir sig fram til þessa.

Eins og svo oft áður var heimildarmaður vopnaður myndavélinni og tók nokkrar myndir af viðburðinum góða sl. föstudagskvöld.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir