
Loksins, loksins losuðu máttarvöldin heljartak sitt á veðrahvolfinu og buðu uppá uppstyttu og mildara veður. Við blasti lítið samfélag snæfi þakið og ekkert útlit fyrir að leika mætti knattleik á íþróttavellinum en í röðum Einherja er að finna fólk sem var á öðru máli; blásið skyldi til sóknar og vopnuð skóflum, sköfum og hjólbörum lagði bjartsýnn hópurinn til atlögu við 8200 m2 völlinn. Og hvergi var gefið eftir, 2.5 klukkustundum eftir að verk hófst náði hópurinn markmiði sínu og við blasti grænn völlurinn í hróplegu ósamræmi við skínandi hvíta mjöllina - sigur hafði unnist með samhentu átaki.
Morguninn eftir voru 3 úr hópi hreinsunarhóps mættir ásamt heimildarmanni og bæjarverkstjóra til að taka verkið út. Var um völlinn farið og staðan metin; aðilar ekki á eitt sáttir en þar sem málið varðar einkum hagsmuni Einherja var þeirra að ákvarða í málinu og niðustaðan á þá leið að leikið verður á vellinum í kvöld. Þannig hefst Íslandsmótið í knattspyrnu með leik Einherja og Hugins kl. 20:00 og markar því ákveðin tímamót, sumarið er hafið! Njótið vel.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá snjóhreinsun og úttekt í morgun.