Sigur í fyrsta leik Einherja

26.05 2011 - Fimmtudagur

Fresta varð leik Einherja og Hugins í tvígang en um var að ræða fyrsta leik beggja liða á Íslandsmótinu í knattspyrnu keppnistímabilið 2011. Fyrir knattspyrnuáhugamanninn er biðin löng þó ekki sé nema í fáeinum dögum talið en þegar vetur gengur í garð að nýju á alröngum tíma ársins er fátt til ráða - nema vera kynni að snjóhreinsa völlinn því þó stytt hafi upp er lofthitanum ekki fyrir að fara. Og það var gert.

Í gærkvöldi var að leik komið og í stuttu máli vann okkar lið sigur, 2:1 (1:0), með mörkum Helga Más og Bjarts en okkar menn komust í 2:0 og virtist hafa leikinn í hendi sér. Mark gestanna setti smá skrekk í mannskapinn en okkar drengir fengu einnig úrvalsfæri er ekki nýttist en mörkin tvö dugðu og 3 stig í höfn.

Sjá mátti á leik Einherja að liðið hefur engan leik leikið fyrir þennan, á köflum brá fyrir ágætum samleik en um leið og færslan minnkaði á liðinu datt sameikurinn niður og Huginn fékk tækifæri til sóknar. Eins er ljóst að margir eiga enn langt í land með að vera komnir í sitt besta form en tíminn vinnur með þeim því framundan eru tækifæri til að vinna í þeim málum undir stjórn þjálfarans, David Hannah. Sá lætur sannarlega í sér heyra og er það góð tilbreyting en aðrir leikmenn liðsins mættu að ósekju opna sig meira því samtal leikmanna á milli er mikilvægur hluti leiksins.

Meðfylgjandi eru myndir frá leiknum, inann vallar og utan.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir