Skólaárinu er brátt lokið, skólslit í Vopnafjarðarskóla verða miðvikudaginn 01. júní - það er óræk sönnun þess að sumarið er komið þó kvikasilfrið á hitmælinum hafi ekki áttað sig á því! Í morgun gekk heimildarmaður fram á ungmenni úr skólanum ásamt kennurum þar sem þau voru í óða önn að skanna umhverfið með poka í hönd og það eitt að markmiði að gera fallegan bæ fegurri. Heldur var hann skapbetri, himnafaðirinn, því ekkert var regnið til að hamla vinnu hinna áhugasömu snyrtifræðinga.
Heimildarmaður tók nokkrar myndir af ungviðinu ásamt leiðbeinendum sínum, í Hamrahlíðinni og Steinholtinu.