Einherji atti kappi við kollega sína frá Fáskrúðsfirði á Vopnafjarðarvelli í gær og lauk leiknum með 2:2 eftir að jafnt var í hléi, 1:1. Boðið var upp á hefðbundið knattspyrnuveður, sé horft til síðast liðins árs, rigningu, auk þess sem kuldaboli fnæsti vindi heldur svölum. Leikurinn leið að sjálfsögðu fyrir aðstæður, einkum er það vindurinn sem ávallt truflar knattspyrnuna en flestum knattspyrnumönnum þykir ánægjulegt að leika í rigningu meðan áhorfendur kjósa það síður.
Leikurinn var annar leikur Einherja á Íslandsmótinu og annar leikur liðsins alls á vorinu/sumrinu meðan andstæðingarnir njóta þess að hafa komið saman nokkrum sinnum til leikja fyrir mótið. Ekki var að greina mikinn mun á liðunum hvað samleik varðar en jafnt var á með liðum allan tímann eins og hálfleiks- og lokatölur sýna, 1:1 og 2:2.
Svo illa vildi til að einn leikmaður Einherja, Daði Pedersen, lenti í slæmri tæklingu með þeim afleiðingum að fóturinn fór úr lið auk þess sem sperrileggur hægri fótar gekk í sundur. Má ljóst vera að Daði hafi leikið sinn síðasta leik á sumrinu, annað kæmi á óvart. Er mikill missir liðsins af jafn öflugum leikmanni og Daði er en mestu varðar að hann nái sér af meiðslum sínum og mæti öflugur til leiks þegar heilsan leyfir. Fær hann bestu kveðjur sendar hér með von um skjótan og góðan bata.
Meðfylgjandi eru myndir frá leiknum í gær.