Opið hús HB Granda í dag

01.06 2011 - Miðvikudagur

HB Grandi h.f. býður Vopnfirðingum að fara um fiskimjölsverksmiðju og uppsjávarfrystihús fyrirtækisins í dag, miðvikudaginn 01. júní. Fram kemur í flygildi er barst í hús í gær að starfsmenn Granda myndu fylgja gestum um vinnslusalina en sá sem það hefur prófað veit sem er að það er mun ánægjulgra en að rölta um án leiðsagnar. Fer saman ótrúlega flókin tækin og fyrir þann sem aldrei hefur reynt eru þau eins og geimvísindi.

Það sem meðal annars býðst að skoða er ný vinnslulína fyrri makríl og nýr búnaður til að hreinsa fitu og þurrefni úr frárennsli uppsjávarfrystihússins en sá búnaður mun vera einstæður hérlendis ef ekki erlendis einnig. Svo er ekki að spyrja að því, gestum verður boðið uppá hressingu auk leiðsagnar um glæslilegt fyrirtækið.

Meðfylgjandi 2 myndir Bjarka frá formlegri opnun verksmiðjunnar 08. apríl sl.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir