ÁTVR flytur í nýtt húsnæði

01.06 2011 - Miðvikudagur

Í 4ða sinn á tiltölulega fáum árum hefur útibú ÁTVR á Vopnafirði verið flutt. Í gær var formleg opnun verslunarinnar í útenda húsnæðis Kauptúns við Hafnarbyggðina en eins og frá hlutunum, utan sem innan dyra er gengið, mun verslunin staldra lengi við þar sem hún er komin núna. Sú vinna sem Árni verslunareigandi hefur lagt í, til að búa svo um að öllum sé gerlegt að nálgast hina nýju verslun, er honum og Vopnfirðingum til mikils sóma. Hafði Marie Robin sérstaklega á orði hversu sérlega væri að verki staðið, er það vel.

Heimildarmaður mætti stundvíslega kl. 15:30 í gær vopnaður myndavélinni að venju. Þar voru iðnaðarmenn mættir, þeir sem raungerðu hugmyndir ÁTVR forkólfa, sem lofa verkið því vopnfirskir iðnarðarmenn eru laghentir menn. Beið hópsins veisluborð að hætti Boggu og hennar fólks á hótelinu en verslunarstjóri verður Árný Vatnsdal, sem flytur sig alfarið úr salarkynnum Kauptúns þó ekki fari stúlkan sú langt.

En sum sé, björt og snotur verslun áfengisverslunarinnar er hér með opnuð og nú geta viðskiptavinir rölt um og handplokkað þann mjöð sem þeir kjósa að höndla í það og það skiptið. Tekur Árný á móti viðskiptavinum með bros á vör, velkomin.

Meðfylgjandi eru fáeinar myndir frá opnuninni.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir