
Vopnafjarðarskóla var slitið með viðhöfn síðast liðinn miðvikudag svo sem venja er. Að þessu sinni átti heimildarmaður ekki heimangengt en fékk góða menn sér til aðstoðar er smelltu af myndum af tilefni dagsins og ber að þakka aðstoðina.
Skólaslit marka í huga þess sem þetta ritar skýr endalok vetrar, vetrarstarfsins, en nemendur halda nú á vit ævintýra sumarsins, þau yngri njóta frelsisins í hvívetna meðan þau eldri hyggjast vinna sér inn eins margar íslenskar krónur og við verður komið. Bróðurpartur ungmenna hefur leitað eftir vinnu hjá HB Granda í þeirri von að vertíðin sumarsins verði eitthvað í líkingu sl. árs og því harla fátt í liði vinnuskólans.
Að venju leitar hugurinn til nemenda 10. bekkjar því þau kveðja skólann sinn hinsta sinni og halda á vit nýrra áskorana án þeirrar verndar sem grunnskólinn býður uppá. Hópurinn er álitlegur og mun án alls efa spjara sig en það hafa kennarar sagt að sú stund er ávallt erfið þegar útskriftarhópurinn er kvaddur, kveðjan er svo afgerandi og aldrei verður neitt sem fyrr. Svona er lífið, aldrei tími til að staldra við heldur líða árin óháð öllum athöfnum mannanna. Fá útskriftarnemar sérstakar kveðjur sendar með óskum um bjarta framtíð hvar sem þau munu finna sig á komandi misserum.
Meðfylgjandi eru myndir af bekkjunum við skólaslitin.