Þá einum skóla lýkur tekur annar við. Skólaslit Vopnafjarðarskóla voru sl. miðvikudag, í morgun var komið að fyrsta skóla-/vinnudegi vinnuskólans. Öðru vísi mér áður brá, hópurinn rétt liðlega fingura annarrar handar, alltént miðað við mætingu fyrsta dags - og ef frá eru reiknaðir fjórir fjallbrattir Skotar! Þeir voru mættir til vinnu, knattspyrnumennirnir okkar, David, Gary, Paul og Reece og biðu fyrirmæla bæjarverkstjórans Hilmars og flokkstjórans Sölva, eins og aðrir vinnuskólanemar.
Aðspurðir hvernig þeim litist á kváðust þeir bara kátir yfir að vera loksins komnir í vinnu vitandi að við erum ekki beinlínis alltaf hlémegin við norðanáttina á Vopnafirði; This is just like Scotland, all sorts of weather on the same day! Á næstu vikum verða þeir félagar með sláttuvélarnar í höndunum og/eða orfin og þau yngir mynda svo rakstrargengið að baki þeim. Við skulum svo vona að allir hlutaðeigandi finni sig í vinnu sinni og að sumarið taki þeim síðustu fram veðurfarslega - og þarf ekki að vera stórbrotið til þess.
Nokkrar myndir fylgja síðan fréttinni.