Vopnfirskar konur komu saman fyrir kl. 11 í morgun og skömmu síðar voru þær komnar af stað í blíðskapar veðri sem bauðst að þessu sinni. Mæting var með ágætum þegar þess er gætt að allmikill fjöldi fer suður þessa helgi á árshátíð HB Granda, sem haldin er í kvöld. Þær sem mættu brostu breitt og nutu samverunnar, heimildarmaður naut þeirra einstöku kosta að fá að stýra upphitun þessa yndislega hóps - sem söng afmælissönginn Ásu Sig., Ásu í Holti, til heiðurs :-)
Konur tóku til fótanna víða um land en Kvennahlaupið fer jú fram í dag um land allt. Er þetta einn fjölmennasti íþróttaviðburður landsins ár hvert og hefur raunar borist til útlanda því einnig er hlaupið í nokkrum Evrópulöndum og í Ameríku.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ, þá var hlaupið í Garðabæ og á sjö stöðum um landið.
Nú geta konur valið úr 85 hlaupastöðum út um allt land og einnig verður hlaupið á 14 stöðum erlendis. Stærsta hlaupið verður í Garðabæ kl. 14, þar sem þúsundir kvenna koma saman og hlaupa. En fjöldinn er ekki málið heldur sá hugur sem að baki hugmyndinn er, konur koma saman og hreyfa sig á einum tilteknum degi ár hvert - þetta þyrftu karlarnir sannarlega að gera líka!
Konur til hamingju með kvennahlaupsdaginn!
Meðfylgjandi er myndasyrpa frá kvennahlaupsdegi.