
Síðast liðið laugardagskvöld stóðu Bræður ehf. fyrir matarveislu í Miklagarði í tengslum við sjómannadag en sem kunnugt er lögðust af fyrir nokkrum árum veisluhöld á laugardegi fyrir sjómannadag á Vopnafirði. Ástæðu þess má einkum rekja til þess að HB Grandi hf., mótandi fyrirtæki á Vopnafirði, hóf að bjóða starfsmönnum sínum á árshátíð fyrirtækisns í Reykjavík á þessum tímamótum og þegar vel er boðið er erfitt að segja nei. Fyrir okkur hin sem eftir sitja var annað hvort játa sig sigraða eða snúa vörn í sókn, hvað skemmtun á laugardagskvöldinu varðar, og það kusu Bræður að gera og stöndum við hin í þakkarskuld fyrir vikið.
Það fólk sem kvöldsins naut lofar framtakið og vill heimildarmaður trúa - veit það - að hér með sé viðspyrna hafin og möguleikar til gagnsóknar augljósir. Framundan er heilt ár uns komið er að sjómannadegi aftur, þann tíma þarf að nota vel og undirbúa næstu hátíð með góðum fyrirvara, með eða án þátttöku HB Granda en líkt og nú, örugglega með aðkomu sveitarfélagsins. Mikilgarður iðaði svo af lífi fram á bjarta nóttina, skemmtu allir sér vel og þóttu trúbadorar standa sig með mikilli prýði en þeir Eiríkur og Þorsteinn Jón verða að öllum líkindum aftur hjá okkur á bæjargrillinu 05. ágúst í sumar.