Bátar á sjómannadag

06.06 2011 - Mánudagur

Fyrir mýmarga er allsendis ómissandi liður í sjómannadegi sigling með skipum/bátum heimamanna, er það hér sem annars staðar svo. Í gær, á sjómannadaginn sjálfan, gafst draumaveður til siglinga fyrir vana sem óvana og þó margir hverfi á braut, sbr. árshátíð HB Granda í Reykjavík, er meirihluti íbúa á staðnum og hluti þess hóps var mættur með von í brjósti um að siglt yrði út á fjörðinn víða - auglýsingin sagði það ekki endilega vera svo.

Alls munu liðlega 10 bátar hafa lagt til hafs í blíðviðrinu og fór ekkert á milli mála að fólk kunni sannarlega að meta það. Að vanda var tekinn rúntur út úr höfninni og lagt á fjörðinn þó vegalegndin sem slík sé ekki höfuðatriðið. Skælbrosandi komu farþegarnir til baka og fáeinum mínútum síðar bauðst þeim að fá sér ögn af sætindum í boði HB Granda - síðan var komið að leikjadagskrá dagsins.

Meðfylgjandi eru myndir heimildarmanns og Jóseps Jobba Jósepssonar frá sjómannadagsgleðinni á hafi úti.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir