Heimildarmaður er ekki hættur umfjöllun sinni um sjómannadag Vopnfirðinga, sem teygði sig frá laugardagskvöldinu 04. júní fram til u. þ. b. kl. 17 á sunnudag, hinn eiginlega sjómannadag. Vikið hefur verið að í máli og myndum að matarveislunni góðu og bátasiglingu morgunsins, meðfylgjandi eru myndir frá leikjum dagsins, athöfn við minnismerki um drukknaða sjómenn og hátíðarkaffi slysavarnardeildarinnar Sjafnar.
Myndmálið talar sínu máli ásamt misgáfulegum texta þess er þetta ritar en myndirnar af leikjunum eru ekki í tímaröð að því leyti að annars vegar eru þær teknar af Hafþóri Róbertssyni, sérlegum hirðljósmyndara okkar þar eð heimildarmaður var upptekinn við önnur störf þá stundina, hins vegar af Jósep Jobba í gegnum linsuna í brekkunni ofan vettvang atburða. Myndirnar eru ekki verri þrátt fyrir þessa staðreynd.