Minjasafnið á Bustarfelli mun opnað gestum föstudaginn 10. júní n. k. en þó kvikasilfrið á hitamælinum segi annað er sumar gengið í garð með ýmiskonar afþreyingu sem ekki býðst að vetri. Minjasafnið hefur löngum verið ein helsta skrautfjöður Vopnfirðinga í ferðamálum og ekki af tilviljun því safnið er eitt hið merkilegasta í sínum flokki í landinu. Með tilkomu kaffihússins Hjáleigunnar batnaði stórum aðstaða ferðamanna er safnið sækja heim, á það jafnt við um ferðamenn langt að komna og heimamenn, sem geta skotist inní sveit og fengið sér kaffi og köku í notalegu umhverfi.
Minjasafnið er opið alla daga frá kl. 10:00 - 18:00 frá og með 10. júní til og með 10. september. Kaffihúsið góða, Hjáleigan, er opin alla daga frá kl. 12:00 - 18:00 á sama tímabili en þess er sérstaklega getið að Vopnfirðingum býðst aðgangskort í safnið sem gildir sumarið á enda - að undanskildum safnadegi 10. júlí - 700 kr. fyrir fullorðna og einungis 100 kr. fyrir börn.
Minjasafnið hefur notið kostanna sl. daga því þar hefur starfað 5 manna hópur frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS - óháð íslensk umhverfissamtök - sem aðstoðað hafa við að koma safninu í stand fyrir sumarið. Í Hjáleigunni er myndlistarsýning, sölusýning, Kára Sigurðssonar, og verður í allt sumar. Eins og segir í auglýsingu er sjón sögu ríkari.