Landsliðsþjálfarinn á Vopnafirði

09.06 2011 - Fimmtudagur

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, heimsótti Vopnafjörð í gær og kom færandi hendi því kassa einn mikinn hafði Óli í fanginu er hann mætti í Einherjaheimilið á þriðja tímanum. Kassinn innihélt s. k. DVD diska með kennsluefni í knattspyrnu, sem Tækniskóli KSÍ hefur látið vinna. Þátttakendur kennslumyndbands eru nokkrir af bestu leikmönnum Íslands nú um stundir og hafa af ýmsu af miðla.

Ólafur sagði það væri eðlilegt að allir myndu ala með sér þann draum að fá að leika fyrir Íslands hönd og/eða komast í atvinnuknattspyrnu á erlendri grund. Mikilvægt væri að missa aldrei sjónar af markmiði sínu að reyna að bæta sig sem mest má verða og væri myndbandið fyrirtaks innlegg í þeim efnum en auðvitað gat landsliðsþjálfarinn ekki neitað sér um að benda okkur eldri á að fyrir okkur væri kennslumyndbandið svona um 40 árum of seint á ferðinni - en betra er seint en aldrei!

Áhugi krakkanna leyndi sér ekki en varla er hægt að vísa í meðfylgjandi myndir því þó heimildarmaður sé afskaplega vandaður myndasmiður voru honum mislagðar hendur að þessu sinni og vísar alfarið á nýja myndavél sveitarfélagsins, sem hann bersýnilega kann ekki alveg á ...





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir