
Í dag komu tvær blómarósir úr Slysavarnardeildinni Sjöfn á Vopnafirði, þær Linda Eymundsdóttir og Hrönn Róbertsdóttir, á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps og færðu sveitarfélaginu að gjöf tvö hjartastuðtæki. Er öðru ætlað að vera í félagsheimilinu Miklagarði, hinu í Selárdalslaug. Áður hefur deildin gefið íþróttahúsinu slíkt tæki og af skrifstofunni héldu þeir stöllur á fund Einars Björns Kristbergssonar, formanns Einherja, til að afhenda honum 4ða tækið, sem staðsett verður á íþróttavelli staðarins.
Allt þetta góða mál er gert í nafni Katrínar Vigfúsdóttur, Kaju í Sunnuhvoli, til minningar um konu sem unni samfélagi sínu og vildi því allt hið besta. Er þakklæti til hlutaðeigandi komið hér með á framfæri en ekkert vafamál að tæki sem þessi geta skilið milli feigs og ófeigs. Hafa fulltrúra Sjafnar verið boðaðar á skrifstofu sveitarfélagsins að nýju á morgun þar eð sveitarstjórinn var upptekinn þá er þær mættu og vill eðlilega fá tækifæri til að þakka fyrir sig, f. h. sveitarfélagsins, með handabandi og kossi