Ísland stendur undir nafni

10.06 2011 - Föstudagur

Að undanförnu hefur land okkar sannarlega risið undir nafni, vetrarríki hefur jú plagað land og þjóð. Við sem byggjum þetta land, Ísland, vitum sem er að allra veðra von er árið um kring, landið er á mörkum hins byggilega heims var karl faðir heimildarmanns vanur að segja og laug engu þar um. Í gærkveldi hélt heimildarmaður norður til Akureyrar ásamt betri helmingnum og undir venjulegum kringumstæðum þætti slíkt ekki frásagnarvert komið vel fram á sumar - eftir 1/2 mánuð fer t. a. m. daginn að stytta að nýju. En það er ekkert venjulegt við tíðina, þrátt fyrir fyrri reynslu og þrátt fyrir að landið sé á mörkum hins byggilega heims.

Samanber meðfylgjandi myndir var veður líkara því að á dagatalinu stæði 09. janúar og ekki júní. Þrátt fyrir þá nöturlegu staðreynd að enn hefur ekkert sumar komið vill heimildarmaður trúa að sumarið sé í nánd með öllum sínum yndisleik en maður kemst ekki hjá að hugsa til umræðunnar um hlýnun jarðar þegar á landinu skellur slíkt veður, ekki dögum heldur vikum saman. Þrátt fyrir háskalegar aðstæður langleiðina, skafrenning á Vopnafjarðarheiði með tilheyrandi snjó, klakabrynju á hálendinu og slabb á Fljótsheiði komust ferðalangar heilu og höldnu norður til höfuðstaðar Norðurlands og þegar þetta er ritað kl. 19.20 föstudaginn 10. er veður blítt - og mun svo verða a. m. k. næsta sólarhringinn ... Verður beðið um meira að sinni?





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir