Síldarvertíð fer hægt af stað

14.06 2011 - Þriðjudagur

Vopnfirðingar horfa til sumarsins með vonir og væntingar varðandi að silfur hafsins, að síldin muni gefa sig að nýju eftir afburðavertíð á sl. sumri. Mikið er undir fyrir íslenskt þjóðarbú ef litið er til vertíðarinnar í víðara samhengi og fyrir samfélagið við Vopnafjörðinn er öllu tjaldað til og velflestir sem vettlingi geta valdið ráðið sig til vinnu hjá HB Granda þetta sumarið. Fáliðað er þar af leiðandi hjá sveitarfélaginu, í vinnuskóla þess, en vösk sveit fjögurra Skota kemur þar inn með afgerandi hætti og er fyrirtaksframlag Einherja til atvinnumála sveitarfélagsins þetta sumarið.

 

Af vef HB Granda, www.hbgrandi.is, frá því fyrir helgi má lesa að rólegt sé á síldarmiðunum, leit hafi lítinn árangur borið en líkt og með andstyggilegt veðrið vonum við að betri tíð sé í vændum – að innan skamms finnist síld í veiðanlegu magni sem teljist í tug þúsundum tonna. Sú síld sem barst til Norðfjarðar sl. fimmtudag þótti falleg en hana veiddi Fagrabergið í færeyskri lögsögu daginn áður. Skv. framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar voru eilitlar átuskemmdir í síldinni að öðru leyti lítur þetta ágætlega út.

 

Á nefndri heimasíðu HB Granda er þess getið að 5 íslensk skip hafi leitað síldar norðaustur af landinu án árangurs fram til þess tíma. Lundey NS hélt frá mánudagskvöldið 06. og að sögn Stefáns Geirs Jónssonar, sem er skipstjóri í veiðiferðinni, er sannkallað vetrarástand í hafinu og lítið virðist vera gengið af síld á hafsvæðið sem íslensku skipin hafa sótt á til síldveiða á þessum árstíma undanfarin ár. Er það eigi góðs viti en rétt eins og við höfum fundið á eigin beinum ríkir vetur og ekki sumar á Íslandi, hið sama á við um hitastig sjávar sem er frá 3,0°C og upp í 3,5°C og það þýðir að það er bara vetur hér enn sem komið er!

 

Á hinn bóginn er að sögn Stefáns Geirs ekkert nýtt að hafa þurfi fyrir því að leit að síldinni og þannig hafi síldveiðin verið frekar treg eftir sjómannadaginn í fyrra og fram yfir 20. júní. Ekki varð vart við makríl í íslensku lögsögunni á leiðinni í Síldarsmuguna en Stefán Geir sagði að einhver færeysk skip væru nú á makrílveiðum norðan við Færeyjar. Meðan ekki annað er vitað skulum við vona það besta og trúa því að fyrr en síðar verði allt komið á fullt í frystihúsi og verksmiðju HB Granda með tilheyrandi gjaldeyristekjum fyrir Ísland.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir