Heimsókn leikskólans - fær afhentan Grænfánann

16.06 2011 - Fimmtudagur

Við á hreppsskrifstofunni nutum þeirra forréttinda að fá leikskólabörnin í heimsókn til okkar en þessar elskur mættu að sjálfsögðu með íslenska fánann í hönd í tilefni af þjóðhátíð á morgun. Kyrjuðu þau ennfremur tvö lög og stóðu sig með mikilli prýði en heimsókn sem þessi er ómetanleg.

Þann 23. júní n. k. mun Brekkubær fá afhentan Grænfánann svo nefnda fyrir metnaðarfullt starf í umhverfismálum og ber að fagna slíkri viðurkenningu, sem er hreint ekki sjálfgefin.

Hér að neðan fer fréttatilkynning leikskólans varðandi Grænfánann. Myndirnar tók heimildarmaður af leikskólabörnum og starfsmönnum í morgun.

Leikskólinn Brekkubær fær afhentan Grænfánann fimmtudaginn 23. júní kl. 16:15. Grænfáninn er viðurkenning fyrir markvissa umhverfisstefnu og er alþjóðlegt verkefni, sem nýtur virðingar víða í Evrópu, sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Að vera skóli á grænni grein er verkefni sem stuðlar að því að efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skóla um umhverfismál.

Leikskólar og skólar fá Grænfána á tveggja ára fresti. Þurfa skólarnir að setja sér ný markmið eftir hverja afhendingu svo þeir fái fánanum haldið áfram. Afhending hans er staðfesting á því að innan skólans sé unnið vel að umhverfismennt og umhverfismálum. Hrafnhildur Ævarsdóttir er verkefnastjóri og sá um að innleiða þetta verkefni. Hún hefur unnið verkefnið ásamt fleiri starfsmönnum með góðum árangri, samanber viðurkenningin. Það verða svo fulltrúar Landverndar sem munu afhenda börnunum Grænfánann. Að afhendingu lokinni verður foreldrafélagðið með sumargleði, þar sem grillaðar verða pylsur ásamt fleiru skemmtilegu sem verður í boði. Vonumst við til að sjá sem flesta foreldra og nemendur í sumarskapi.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir