Þjóðhátíðardagurinn 17. júní var hátíðlega haldinn á Vopnafirði, nú voru engar fermingar til að trufla hátíðarhöldin en í fámenninu munar um hvern einstakling. Þrátt fyrir heldur kuldalegt veður var afráðið að halda sig við þá áætlun að vera útivið, við erum jú Íslendingar og þeir eru ýmsu vanir þegar að veðrinu kemur. Hefðbundin dagskrá í höndum Ungmennafélagsins Einherja var í boði; hátíðargangan var ekki fjölmenn en hún var gengin venjubundna leið frá Miklagarði að hátíðarsvæðinu þar sem fjallkonan fór með ávarp til fósturjarðarinnar og hátíðarræða var flutt.
Í framhaldi af ofangreindu var hátíðleikanum ýtt til hliðar og við tóku hinir ýmsu leikir með þátttöku mýmargra en hvað er mikilvægara en einmitt að kunna að leika sér með góðu fólki - maður er jú manns gaman. Allir skemmtu sér hið besta áður en haldið var inn í félagsheimilið Miklagarð hvar hlaðborð beið svangra hátíðargesta. Vel var mætt og gómetinu gerð góð skil.
Á völdu augnabliki voru undirritaðir samningar milli annars vegar Landsbankans og Björgunarsveitarinnar Vopna og hins vegar milli Landsbankans og Ungmennafélagsins Einherja. Er um nýja stuðningssamninga að ræða, ákaflega höfðinglega og koma sér sérlega vel í endanlausri baráttu nefndra félaga í viðleitni sinni að halda úti áfram öflugu starfi. Var Landsbankanum sérstaklega þakkað sem og kveðjum komið á framfæri til HB Granda hf., sem aukinheldur hefur afráðið að leggja Einherja til stóraukinn stuðning - hvoru tveggja mikil viðurkenning fyrir það starf sem Einherji hefur innt af hendi um árabil á Vopnafirði.
Meðfylgjandi eru liðlega 50 ljósmyndir, sem langflestar tók Jósep Jobbi Jósefsson, kann heimildarmaður, sem var mikið upptekinn við eitt og annað á þjóðhátíðardag, Jobba bestu þakkir.