Samkomulag um eflingu tónlistarnáms

20.06 2011 - Mánudagur

Náðst hefur samkomulag milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og ráðuneytis mennta- og menningarmála um jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms óháð búsetu. Á fundi hreppsnefndar 09. júní sl. var samkomulag nefndra aðila lagt fram en um árabil hefur aðstöðumunur aðkomunemenda og heima í hlutaðeigandi sveitarfélagi verið mikill. Með samningnum heitir ríkissjóður aðkomu að kennslukostnaði í tónlistarskólum, þannig að nemendum verði kleift að stunda tónlistarnám á framhaldsstigi óháð búsetu og efnahag.

 

Samkvæmt samningnum, sem undirritaður var 13. maí sl., mun ríkissjóður veita árlegt framlag alls 480 m. kr. vegna kennslukostnaðar í tónlistarskólum, sem jafngildir 76 stöðugildum, að viðbættri hlutdeild í stjórnunarkostnaði, hljóðfæragjaldi, kostnaði vegna langtímaforfalla og öðrum tengdum kostnaði. Greiðist framlagið til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en móti 480 m. kr. framlagi ríkissjóðs skuldbinda sveitarfélög sig til að taka yfir ný verkefni frá ríki sem nemur 230 m. kr.

 

Þessum samningi ber að fagna en lengi hefur þess verið vænst að jöfnun yrði komið á. Vopnfirðingar sem aðrir hafa lengi bent á það misrétti sem í gildi hefur verið en aðkomunemendur hafa orðið að leggja fram fleiri hundruð þúsund krónur ár hvert til að geta mætt kröfum viðkomandi tónlistarskóla án mótframlags ríkisins eða stuðnings hlutaðeigandi sveitarfélags.

 

Á áðurnefndum fundi hreppsnefndar var lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 12. október 2009 til menntamálaráðuneytisins, þar sem gerð er grein fyrir þeim mikla aðstöðumun sem hefur verið varðandi tónlistarnám framhaldsskólanema utan lögheimils sveitarfélags. Í bréfinu er óskað eftir því að menntamálaráðuneytið beiti sér fyrir úrbótum í þessu efni.

 

Lögð var fram svofelld bókun:

 

„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar þeirri miklu bragarbót sem náðst hefur með samkomulagi þessu til jöfnunar á tónlistarnámi á framhaldsskólastigi, óháð búsetu. Samkomulagið er mikið framfararskref fyrir tónlistarnám og lagfærir þann mikla aðstöðumun sem verið hefur á þessum málum eftir því hvar lögheimili viðkomandi nemenda hefur verið”

 

Fyrirliggjandi bókun samþykkt samhljóða.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir