Menningarsumarið að taka á sig mynd

21.06 2011 - Þriðjudagur

Í dag er lengsti dagur ársins, 21. júní, en því miður hefur fyrri hluti bjarta tímabilsins verið í dimmara lagi enda viðrað vægt til orða tekið illa á Austurlandi allt frá miðjum maí – eftir einn albesta aprílmánuð frá upphafi mælinga. Frostnætur eru enn ekki að baki en sumarið er engu að síður löngu hafið og hefur menningarmálafulltrúi í samvinnu við menningarmálanefnd Vopnafjarðar planlagt menningarsumarið. Einhverjar breytingar geta orðið á dagskrá en fyrir liggur að viðburðirnir eru tveir, Vopnaskak 07.-10. júlí n. k. og Einu sinni á ágústkvöldi 01.-07. ágúst n. k.

 

Sett hefur verið saman dagskrá, sem í megindráttum mun standast en þó áskilja aðilar sér ávallt rétt til breytinga sem geta átt sér ýmis konar ástæður en sum sé í megindráttum liggur menningarsumarið og haustið fyrir og fer dagskrá viðburðanna hér á eftir – með rétt til breytinga. Og þó breytingar kunni að eiga sér stað er ljóst að dagsetningar viðburðanna standa svo sem hér fer.

 

Vopnaskak, 07.-10. júlí:

-          Fim. 07.07 - Golfmót Golfklúbbs Vfj. kl. 18:00 – á vegum golfklúbbsins

-          Fös. 08.07 - Tónleikar Friðriks Ómars og Jógvan í Miklagarði kl. 21.00– baropnun að tónleikum loknum.

-          Lau. 09.07 – Fjölskyldudagur með markaði í miðbænum kl. 13:30; tónleikar heimafólks; Einar Mikael töframaður m/námskeið, krakkar sýna töfrabrögð ásamt meistaranum.

-          Lau. 09.07 – (Kjöt)súpa víðs vegar um bæinn kl. 19:00 – í boði bjóðenda

-          Lau. 09.07. - Karlakórinn Drífandi, tónleikar í Miklagarði kl. 20:30

-          Lau. 09.07 – Dansleikur í Miklagarði með … U2 bandinu kl. 23:00.

-          Sun. 10.07 – Safnadagur á Bustarfelli – Múlastofa opin

 

Einu sinni á ágústkvöldi, 01.-07. ágúst:

-          Mán. 01.08 (frídagur versl.m.) – Listasmiðjur byrja. Einn leiðbeinandi líkt og í fyrra,

-          Fim. 04.08 – Bærinn skreyttur

-          Fös. 05.08 – Bæjargrill á skólalóð.

-          Lau. 06.08 – Erluhátíð í Miklagarði kl. 13:00 – Guðfinnu Þorsteinsdóttur minnst með þátttöku Erlusjóðs. Þessum viðburði mega Vopnfirðingar ekki missa enda einstakur.

-          Lau. 06.08 – Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:00 – sýning ungmenna og skáldakvöld.

-          Lau. 06.08 – Tónleikar stórbands Eyþórs Gunnarssonar – tónlist Jóns Múla Árnasonar – enn óvíst en góðar vonir að muni ganga

-          Lau. 06.08 – Dansleikur … Var ekki á sl. ári. Er vilji staðar í samfélaginu …?

-          Sun. 07.08 – Léttmessa kl. 14:00 – Edgar Smári og Óskar Einarsson. Tveir frábærir saman ásamt sr. Stefáni Má

-          Sun. 07.08 - Viðburður á Bustarfelli síðar um daginn

 

Skáldakvöld - Björgvinshátíð færð fram á haust í samstarfi við Akureyri og Egilsstaði en megnið af sýningarefni kemur að norðan. Ljóst að hér verður um vandaða dagskrá að ræða.

 

Menningarmálanefnd tekur síðan þátt í öðrum viðburðum á sumrinu sem auglýstir verða þá sérstaklega.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir