Það er alkunna að náttúra Vopnafjarðar hefur margan gimstein að geyma. Við sem búum í sveitarfélaginu tökum eflaust minna eftir perlunum en gesturinn, glöggt er gests augað stendur á góðum stað. Jósep Jobbi er einn þeirra sem seint þreytist á að njóta þess sem næruhverfið hefur uppá að bjóða og fyrir okkur hin sem minna sinnum þessum annars nauðsynlega þætti njótum þess að strákurinn er yfirleitt með myndavélina við höndina.
Þann 02. júní sl. var Jobbi á röltinu handan fjarðar, við Virkisvíkina og Gljúfursána, og tók þá nokkrar myndir sem fylgja hér að neðan. Án efa hefur náttúran staðið í meiri blóma áður á sama árstíma en enn 20 dögum eftir að meðfylgjandi myndir voru teknar ræður kuldaboli ríkjum og alls óvíst hvenær hinn langþráði sunnanvindur blæs yfir land og sæ - þangað til reynir enn á þolinmæðina og biðlundina.