Mikið hefur þeirrar stundar beðið að skip HB Granda færðu silfur hafsins, síldina, að landi. Hinn ískaldi sjár hefur reynst hamlandi á síldargöngur sem öllu jafna fyndust í íslenskri lögsögu en kropp hefur þó verið sl. sólarhringa og sem árangur þess komu Lundey NS og Ingunn AK til hafnar á Vopnafirði í gær og fyrradag. Lundey með um 350 tonn og Ingunn 900 tonn, skv. Elmari Þór Viðarssyni hjá HB Granda. Hið öfluga fyrirtæki vinnur 400 tonn/sólarhring svo aflinn er fljótur í gegnum vinnsluvélar þess.
Á meðan löndun stóð yfir voru starfsmenn í óða önn að koma frystum afurðum, það sem þegar var á land komið á vertíðinni, um borð í Framnesið, samtals 520 tonn. Í morgun var Lundey komin til hafnar með 70 tonn af makríl, sem er afli líka þó lítill sé en óskandi er að fyrr en síðar muni veiðar glæðast með tilheyrandi vinnu fyrir okkar fólk færandi þarfar tekjur í íslenska þjóðarbúið.