Í gær, fimmtudaginn 23. júní, fékk leikskólinn Brekkubær á Vopnafirði Grænfánann afhentan með viðhöfn á skólalóðinni, hvar sveitarfélagið hafði reist flaggstöng fyrir áeggjan ungra nemenda leikskólans, er rituðu sveitarstjóra bréf hér að lútandi. Það bréf afhenti Þorsteinn sveitarstjóri Steinsson leikskólanum síðan innrammað við athöfnina eftir að hafa flutt tölu, þar sem hann stoltur lýsti yfir ánægju sinni yfir frumkvöðlahlutverki hinna smáu, hér hefði hlutverkið snúist við; hvað gamall nemur, ungur temur.
Áður hafði Sandra leikskólastýra greint frá verkefninu, sem kom í hlut Hrafnhildar Ævarsdóttur að leiða fyrir hönd leikskólans en svo skemmtilega vildi til að einmitt í gær átti Hrafnhildur afmæli og kyrjuðu ungir sem eldri afmælissönginn henni til heiðurs. Að ávörpum loknum kom í hlut fulltrúa Landverndar að afhenda fánann og með dyggri aðstoð valins hóps nemenda var fánanum komið á flaggstöngina og hafandi dregið Grænfánann í topp var áfanganum fagnað með lófataki. Síðan var boðið upp á grillaðar pylsur og þó allt annað en hlýtt hafi verið í veðri gerðu gestir pylsunum góð skil.
Um verkefnið – Grænfáninn
Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu.
Skólar á grænni grein - Grænfáninn
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni ætlað að stuðla að umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.
Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Markmið verkefnisins er að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.