Magnaður sigur

26.06 2011 - Sunnudagur

Einherji vann baráttusigur á Magna frá Grenivík í 3. deildarkeppni Íslandsmótsins í knattspyrnu í gær með 1:0 en mark Kristófers Einarssonar, áður en síðari hálfleikur náði miðbiki sínu, skildi liðin af og fögnuður heimamanna mikill. Að vísu var sigurinn einungis einn og þýðir ekki annað en að 3 stig unnust en eftir misjafnt gengi að undanförnu - ef frá er skilinn frábær leikur drengjanna í 2:2 gegn toppliði Sindra - en er vonandi vísbending um betra gengi í komandi leikjum. Næst komandi föstudag verður leikið á Fáskrúðsfirði gegn heimamönnum í Leikni og er brýnt að liðsmenn haldi sig við efnið og vinni sigur á útivelli.

Leikurinn var í sjálfu sér ekkert augna yndi á að horfa nema fyrir þann er ann harðri baráttu en sannast sagna brá sjaldan fyrir snortum samleik við aðstæður sem teljsta verða hinar bestu í landshluta sem liðið hefur fyrir stöðuga ánauð norðanáttar. Hið gleðilega er okkar menn gáfu aldrei eftir en hingað til hefur verið mikill munur á leik Einherja á heimavelli og á útivöllum. Lið Magna er sterkt og í það vantaði 3 aðalliðsmenn en breytir engu um góðan sigur Einherja, sem fékk dauðafæri í fyrri hálfleik, boltinn fór hárfínt framhjá. Kom ekki að sök því eftir mikinn atgang í teig Magna tókst Kristófer að koma skoti sem var nógu fast til að markvörður Magna kom engum vörnum við, 1:0 og þar við sat.

Meðfylgjandi eru 25 myndir Jobba joð, heimildarmaður brá sér í hlutverk liðsstjóra og fékk því vin sinn til liðs við sig enn á ný.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir