Vopnfirðingar á faraldsfæti

27.06 2011 - Mánudagur

Við og við birtast fregnir af okkar piltum í meistaraflokki Einherja í knattspyrnu enda bera þeir hróður Vopnafjarðar víða með framgöngu sinni - og eru stað sínum til sóma í hvívetna. Sama hver skoðun hlutaðeigandi kann að vera þá felst í þátttökunni fengur fyrir samfélagið því nafn þess fer víða og þó ekki sé nema liðshópur andstæðingsins hverju sinni fylgir honum viðskipti sem ellegar ættu sér ekki stað, svo ekki sé talað um þá þjónustu sem heimaliðið kaupir í kringum rekstur sinn.

Einherji er sannarlega annað og meira en meistaraflokkur, sem skapar fyrirmynd ungviðisins, og um sl. helgi hélt 6. flokkur félagsins í víking, tók þátt í Hattarmóti aldursflokks síns. Með flokknum fór Símon þjálfari Svavarsson, þ. e. síðari daginn en þann fyrri var þjálfarinn upptekinn í eigin baráttu við Magna, svo sem áður hefur verið frá greint. Er skemmst frá því að segja að okkar krakkar stóðu sig með mikilli prýði, sigur vannst og leikir töpuðust á víxl en umfram allt lögðu þau sig fram um verkefni sitt - og voru sjálfum sér og félaginu til sóma.

Bjarki Björgólfsson var staddur á Egilsstöðum í gær, sunnudaginn 26. júní, og tók þá nokkrar myndir af fulltrúum okkar á Hattarmótinu og fylgja þær hér með.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir