Einn burðarása samfélags er viðunandi heilbrigðisþjónusta, að íbúum hvers samfélags sé tryggð aðgengi læknisþjónustu alla daga, allt árið. Á þetta einkum og sér í lagi við um samfélög sem staðsetingar sinnar vegna eru fjarri stærri byggðakjörnum landsins, svo sem Vopnafjörður. Í fersku minni er sú barátta sem háð var á sl. ári er stjórn HSA hugðist leggja af starfsemi Sundabúðar með ófyrirséðum afleiðingum fyrir sveitarfélagið. Þá stóð samfélagið Vopnfirska saman á vaktinni og mótmælti kröftuglega. Sýnir sig að það er jafn gott að hverfa ekki af vaktinni en dagana 16.-19. júní sl. var læknislaust í sveitarfélaginu og ber rekstraraðili við peningaskorti. Þessu ráðalgi hefur sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps harðalega mótmælt.
Á hreppsnefndarfundi Vopnafjarðarhrepps hinn 23. júní sl. var þetta alvarlega mál til umræðu, sbr. bókun á fundinum. Þar segir:
5. mál. Læknisleysi á Vopnafirði. Gerð grein fyrir málinu.
Dagana 16. júní til og með 19. júní sl. var læknislaust á Vopnafirði. Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Austurlands hafa greint frá því að hér sé um nauðsynlegar aðgerðir í sparnaðarskyni að ræða.
Vopnafjarðarhreppur hefur mótmælt því harðlega að grunnlæknisþjónusta sé tekin frá Vopnafirði í þeim einum tilgangi að spara. Í þessu sambandi hefur bæði verið rætt við forstöðumenn HSA og einnig við Velferðarráðherra. Í þeim samtölum hefur því harðlega verið mótmælt að grunnþjónusta af þessum toga sé tekin frá samfélögum eins og Vopnafirði.
Lögð fram svofelld ályktun:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðar mótmælir því harðlega að grunnlæknisþjónusta sé tekin af Vopnfirðingum í sparnaðarskyni eins og raunin var á um nokkurra daga skeið nú í júní.
Það getur ekki verið ásættanlegt að sveitarfélag sé haft læknislaust í sparnaðarskyni og þannig tekin áhættan á því að engin erfið læknistilfelli komi upp á sparnaðartímabilinu. Vopnafjörður er í 135 km fjarlægð frá Egilsstöðum, þar sem næst er unnt að ná í lækni, ef vá ber að dyrum. Jafnframt er um háa fjallvegi í um 600 metra hæð yfir sjávarmáli að ræða svo allsendis er óvíst hversu öruggt er að komast milli þessara staða þegar brýna nauðsyn ber til.
Með ályktun þessari er þess krafist að læknislausir dagar verði ekki fleiri á Vopnafirði og að sjálfsögð grunnþjónusta á sviði lækninga verði til staðar þar, sem og á öðrum þéttbýlisstöðum landsins”.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða fyrirliggjandi ályktun og felur sveitarstjóra að koma henni á framfæri við Velferðarráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Austurlands.