Kjör oddvita og vara

29.06 2011 - Miðvikudagur

Ár hvert skal sveitarstjórn kjósa sér oddvita og annan til vara. Á síðasta fundi sveitarstjórnar, þann 23. júní sl., fór kjörið fram og var Þórunn Egilsdóttir kjörin oddviti til næsta árs og Björn Gunnar Hreinsson til vara. Þórunn var þannig endurkjörin.

 

Í Sveitarstjórnarlögum, 14. gr., segir m. a.:

 

14. gr. Kjör oddvita og varaoddvita.

 

Á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar kýs sveitarstjórn oddvita og einn eða fleiri varaoddvita. Stöðuheiti oddvita sveitarstjórnar má ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

 

Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er eitt ár. Nú nýtur oddviti ekki lengur stuðnings meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn og skal hann þá víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.

 

Sá er rétt kjörinn oddviti eða varaoddviti sem hefur fengið atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju og skal þá kjósa um þá tvo er flest fengu atkvæðin. Ef þrír eða fleiri sem um skyldi kjósa hafa fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

 

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til ráðuneytisins þegar að því loknu.

 

 

Að fundi sveitarstjórnar að nýju, í bókun segir:

 

6. mál. Kjör oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar.

Samkvæmt 14. gr. sveitarstjórnarlaga þarf að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar í júní hvert ár, þar sem kjörtímabil þessara aðila er eitt ár.

 

Tillaga kom fram um að nýr oddviti sveitarstjórnar verði Þórunn Egilsdóttir

Samþykkt með 5 atkv. 2 sátu hjá.

 

Þá kom fram tillaga um að næsti varaoddviti yrði Björn Hreinsson.

 

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með 5 atkvæðum. 2 sátu hjá.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir