Frá því var greint á þessum vettvangi 21. júní sl. að menningarsumarið lægi í megindráttum fyrir en þó þannig að framkvæmdaaðili áskildi sér rétt til breytinga. Þær liggja nú fyrir og komi ekkert óvænt uppá er dagskrá Vopnaskaks og Einu sinni á ágústkvöldi klár. Staðfest var í gærkvöldi að stórband Eyþórs Gunnarssonar mun leika á menningarhátíðinni Einu sinni … en tónleikar bandsins á 90 ára afmælisdegi meistara Jóns Múla, 31. mars sl., í Salnum þóttu hreint afburðagóðir. Eru þetta einkar gleðilegar fréttir en fyrir þá sem hlýddu á tónleika hljómsveitar Eyþórs við opnun Múlastofu vita sem er að hér fer tónlistarfólk í allra fremstu röð.
Nær í tímanum er Vopnaskakið, 07. – 09. júlí n. k., og hefst að vanda á golfmóti golfklúbbsins. Kjötsúpan færist af laugardegi fram til föstudagsins, frá og með kl. 18:30 er reiknað með að gott fólk bjóði til matarveislu líkt og var í fyrra og tókst sérlega vel til. Standa vonir að hægt verði að endurtaka þetta ánægjulega framtak en það byggist auðvitað á þeim sem frumkvæðið hafa.
Fjölskyldudagur í miðbænum færist aftur um tvær klukkustundir frá fyrri áætlunum því kl. 13:00 hefst leikur Einherja og Draupnis – KSÍ hefur samþykkt að leiknum verði flýtt um eina klukkustund miðað við leikskrá. Mikið verður um að vera í miðbænum hví auk markaðstorgs verður eitt og annað um að vera á sviðinu, s. s. Einar Mikael töframaður og krakkar af námskeiði hans, U2 bandið, framlag heimamanna o. fl. Um kvöldið kyrjar Karlakórinn Drífandi, kl. 20:30 í Miklagarði, uns U2 bandið lokar deginum með dansleik á sama stað.
Að öðru leyti er dagskráin svo sem hér sýnir og er sjálfsagt að fólk haki við nefnda daga á almanakinu og beri fréttina áfram til vina og ættingja.
Menningarmál sumar 2011 –-
Skáldakvöld – Erla – Guðfinna Þorsteinsdóttir – Einu sinni á ágústkvöldi 06. ágúst.
Skáldakvöld - Björgvinshátíð - færð fram á haust í samstarfi við Akureyri og Egilsstaði en megnið af sýningarefni kemur að norðan.
Vopnaskak, 07.-10. júlí:
- Fim. 07.07 - Golfmót Golfklúbbs Vfj. kl. 18:00 – á vegum golfklúbbsins
- Fös. 08.07 - (Kjöt)súpa víðs vegar um bæinn kl. 18:30 – í boði bjóðenda
- Fös. 08.07 - Tónleikar Friðriks Ómars og Jógvan í Miklagarði kl. 22:00– baropnun að tónleikum loknum.
- Lau. 09.07 – Leikur Einherji – Draupnir kl. 13:00 (færður fram um klst.)
- Lau. 09.07 - Fjölskyldudagur með markaði í miðbænum kl. 15:00; tónleikar heimafólks, U2 tónleikar (4-5 lög); Einar Mikael töframaður m/námskeið, krakkar sýna töfrabrögð ásamt meistaranum.
- Lau. 09.07. – Karlakórinn Drífandi – tónleikar í Miklagarði kl. 20:30 – verð kr. 1.500,-
- Lau. 09.07 – Dansleikur í Miklagarði með U2 bandinu kl. 23:00. Verð kr. 2.000,-
- Sun. 10.07 – Safnadagur á Bustarfelli – Múlastofa opin
Einu sinni á ágústkvöldi, 01.-07. ágúst:
- Mán. 01.08 (frídagur versl.m.) – Listasmiðjur byrja. Einn leiðbeinandi líkt og í fyrra – sá hinn sami, Valgeir Skagfjörð
- Fim. 04.08 – Bærinn skreyttur
- Fös. 05.08 – Bæjargrill á skólalóð. Lifandi tónlist, Þorsteinn Jón og Rúnar Eff
- Lau. 06.08 – Erluhátíð í Miklagarði kl. 13:00 – 15:00. Vettvangsferð um Hofsárdal að hátíð lokinni
- Lau. 06.08 - Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:00 – sýning ungmenna og skáldakvöld.
- Lau. 06.08 – Tónleikar stórbands Eyþórs Gunnarssonar – tónlist JMÁ –
- Lau. 06.08 – Dansleikur …? Var ekki á sl. ári – óvíst en vilji …
- Sun. 07.08 – Léttmessa kl. 14:00 – Edgar Smári og Óskar Einarsson – þá er stuð!
- Sun. 07.08 - Viðburður á Bustarfelli síðar um daginn. Múlastofa opin alla dagana