Sést til sólar eftir langa bið

01.07 2011 - Föstudagur

Það eru engar ýkjur að Vopnfirðingar rétt eins og aðrir Austfirðingar hafa orðið að sýna mikla þolinmæði yfir veðufarinu sl. 6 vikur því þó fólk sé ýmsu vant hefur tíðin verið hreint óyndi þessar vikur og kvikasilfur hitamæla nær 0°C en 10. Að sjálfsögðu hefur ótíð sem þessi mikil áhrif á skaplyndi fólks, lengi vel er hægt að leika hlutverkið "þetta er bara Ísland" en fyrir rest verður ekki að sjálfinu logið lengur og sálartetrið hruflað. Og nú þegar 1/3 sumars er að baki og daginn tekið að stytta aftur sást loks til sólar í morgun og standa vonir til að næstu dægrin að minnsta kosti verði Austurland baðað geislum sólar þó það verði ekki nema hluta hvers dags.

Munurinn á liðnum júní - og 1/2 af maí ef út í það er farið - er sá drungi sem ríkt hefur í veðrahvolfinu, ekki einungis hefur verið kalt í veðri heldur höfum við ekki notið geisla sólar ólíkt undangegnum árum. Regnið hefur aukinheldur lamið landið austanvert utan og afleiðing gegnsósa jörð, samanber meðfylgjandi myndir af íþróttavellinum. Nú skín hins vegar sól og þá léttist brún íbúa allra - ótrúleg eru umskiptin og ef hann vissi, sá sem veðrakerfum ræður, myndi hann aldrei gera mannfólkinu að bjóða slíka (ó)tíð og þá sem að baki er.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá í morgun og af vellinum þann 28. júní sl.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir