Heimildarmaður fékk dóttur sinni, Gabríelu Sól, myndavél í gær, 30. júní, og bað hana að mynda það sem á vegi hennar kynni að vera, skyldi hún sjálf ákveða viðfangsefnið. Að sjálfsögðu má staðhæfa að þar með hafi heimildarmaður misnotað aðstöðu sína en þar sem gestir heimasíðu sveitarfélagsins njóta að fullu góðs af dagsverki stúlkunnar hljóta hlutaðeigandi að horfa jákvætt til gjörningsins.
Myndirnar tala sínu máli segjandi a. m. k. 1000 orð hver þeirra.
Að öðru. Alltaf er eitthvað um að vera í tengslum við minjasafnið Bustarfelli og samkvæmt auglýsingu frá safninu er líf og fjör í sveitinni. Þar segir:
Nú eru dýrin komin í girðinguna sína. Gyltan Ojnka, kiðið Gibba, hvítur kálfur og tveir heimalningar. Nú vantar okkur ykkar hjálp við að finna nöfn á kálfinn og heimalningana. Kíkið við og komip með tillögur að nöfnum á þau svo þau verði nú ekki nafnlaus í sumar, greyin litlu :-)
Kaka helgarinnar er marensterta með ávöxtum, súkkulaðibitum og karamellubráð. sneiðin kostar 600 krónur og kaffi/te fylgir frítt með eða djús fyrir börnin.
Við minnum Vopnfirðinga á aðgangskortin í minjasafnið. Verið ávallt velkomin í Bustarfell.