Tekið til

06.07 2011 - Miðvikudagur

Vopnafjörður þykir með snotrari plássum, bæjarstæði þéttbýlisins er fagurt og almennt er mikil áhersla lögð á að snyrta sitt umhverfi. Utan þéttbýlisins er fallega sveit að finna og skiptir ekki máli hvað dalurinn heitir, allir hafa þeir yfir fegurð að búa með myndarlegum ám er skiptir hverjum þeirra með afgerandi hætti. Heimildarmaður rölti um bæinn fáein skref sl. mánudag og hitti þá einkum starfsmenn sveitarfélagsins og er þar sama sjónarmið ríkjandi, bærinn skal fegraður svo sem kostur er.

Komi sú tíð á þessu sumri mun heimildarmaður án alls efa halda af stað út í veðurblíðuna og mynda innan þorps og utan bjóðist sá kostur en hingað til hafa þeir einungis verið teljandi á fingrum annarrar handar þeir dagar sem kalla má sumartíð. Framundan er bæjarhátíðin Vopnaskak með tilheyrandi dagskrá utan húss sem innan, gangi veðurspá eftir eru allar líkur á að dagskráin verði öll innan dyra og þá í félagsheimilinu Miklagarði.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir