Í dag, fimmtudaginn 07. júlí, hefst fjölskyldu-/bæjarhátíðin Vopnaskak með golfmóti Hótels Tanga í umsjón Golfklúbbs Vopnafjarðar og hefst stundvíslega kl. 18:00. Það kemur sjálfsagt fæstum á óvart að vettvangur viðburðar er golfvöllurinn inn við Skála og er leikið samkvæmt Texas Scramble, sem í einföldu máli segir að af skori hvers pars gildir betri árangur annars spilarans. Veður er þokkalegt, engin sól fremur en flesta sumardaga hingað til en stillt og án ofankomu - og þá er lítið mál að spila.
Á morgun, föstudaginn 08., er hin eiginlega hátíð hafin því vænta má almennrar þátttöku íbúa og gesta Vopnafirðinga þegar fern hjón bjóða heim til sín gestum hvar kjötsúpa að hætti hússins er í boði á hverjum stað. Opna hlutaðeigandi hús sín klukkan 18:30 og rétt eins og í fyrra má vænta að bragðlaukanna verði sannarlega freistað. Í flygildi sem fer í hvert hús sveitarfélagsins er tilgreint hvar þetta góða fólk er að finna.
Síðar um kvöldið, klukkan 22:00 munu tveir eftirsóttustu tengdasynir Íslands, eins og segir í auglýsingu Rigg, Friðrik Ómar og Jógvan, standa á sviði Miklagarðs. Þarf ekki að fjölyrða að um frábæra skemmtun er að ræða því ekki einungis eru piltarnir söngvarar í fremstu röð heldur úrvalsmenn í hvívetna. Munu þeir áður en til tónleika kemur heimsækja íbúa Sundabúðar. Að tónleikum loknum er Einar Ólafur með barinn opinn.
Laugardagurinn 09. er langi dagurinn því strax kl. 12:30 verður grillað á vellinum, þ. e. Einherji mun grilla hamborgara fyrir leik Einherja og Draupnis, sem hefst kl. 13:00 - og var flýtt vegna fjölskyldudags í miðbænum. Markaðstorgið opnar kl. 14:00 en formleg dagskrá fjölskyldudags hefst kl. 15:00 með þátttöku Batterísins, U2 bandsins, Einars Mikael töframanns og nemenda hans auk söngs ungmenna okkar - vonir standa alltént til að svo verði. Ungur hópur verðandi töframanna verður á námskeiði hjá meistaranum milli kl. 12:30-14:30.
Klukkan 20:30 er komið að Karlakórnum Drífandi að kyrja söngva sína í Miklagarði og kl. 23:00 stórdansleikur með U2 bandinu en síðast þegar þeir léku hér á Vopnafirði slógu þessir snjöllu piltar algjörlega í gegn enda snilldar tónlistarmenn. Söngvari bandsins er Edgar Smári Atlason en að öðru leyti eru liðsmenn þess austanmenn.
Á sunnudag halda viðburðirnir áfram því kl. 13:00 er afhjúpun minnismerkis um systkinin 3 er drukknuðu í Berjabolla ofan Þorbrandsstaða en þessa sorglega atburðar verður þannig minnst um aldur og ævi. Að athöfn lokinni er Bustarfell í leiðinni, safnadagur er í minjasafninu í Bustarfelli frá og með kl. 14:00 þennan dag. Verður þar ýmislegt um að vera eins og auglýsing safnsins ber með sér og fer í öll hús í dag. Ef þetta er ekki nóg verður haldið á slóðir Vopnfirðingasögu þennan dag og veitir Ágústa í upplýsingamiðstöð nánari upplýsingar hér að lútandi.